Eftirfylgd við blind og sjónskert börn.
Sérhæfð ráðgjöf og eftirfylgd við blind og sjónskert börn er veitt frá Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga (áður Sjónstöð Íslands). Greiningarstöð sinnir einnig ráðgjöf og eftirfylgd, eftir eðli fötlunar og þörfum barns og fjölskyldu. Samstarf er um þjónustu við börnin og fjölskyldur þeirra og leitast er við að miðla milli stofnananna upplýsingum um stöðu og íhlutun, sem fást til dæmis við ferðir í heimabyggð barnsins frá hvorri stofnun um sig.
Sé fyrirhuguð þverfagleg athugun á Greiningarstöð fyrir barn sem býr utan höfuðborgarsvæðis er gert sé ráð fyrir athugun á Sjónstöð í sömu viku.
Leitast er við að greining liggi fyrir við mikilvæga áfanga í lífi barnsins svo sem við upphaf leikskólagöngu og skólagöngu. Athugun á Þjónustu- og þekkingarmiðstöð fer yfirleitt fram á sömu tímamótum. Niðurstöður eru sendar milli stofnana og samráð er haft um að kynna þær fyrir foreldrum og þjónustuaðilum.

