Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins

Um ISAAC

 

isaac_logo

Isaac (international Society for Augmentative and alternative communication) eru alþjóðleg samtök sem hafa það að markmiði að auka þekkingu og útbreiðslu fólks á notkun óhefðbundinna tjáskiptaleiða. Markmið samtakanna er að auka lífsgæði þeirra sem eiga við tjáskiptaörðugleika að stríða. Samtökin vinna að því að auka við og styðja rannsóknir og þróun á sviði óhefðbundinna tjáskiptaleiða.

ISAAC var stofnað 1983 og eru meðlimir samtakanna frá yfir 50  löndum.

14 lönd hafa sérstakar ISAAC deildir (Chapters) í sínu heimalandi, má þar nefna Ástralíu, Kanada, Danmörk, Noreg, Svíþjóð, Finnland, Bretland o.fl enskumælandi lönd, Frakkland o.fl frönskumælandi lönd, Þýskaland o.fl. þýskumælandi lönd, Bandaríkin, Ísrael, Ítalíu o.fl.

Á  Íslandi er ekki starfandi sérstök ISAAC deild (Chapter) en við getum verið meðlimir í öðrum löndum. Undirrituð er t.d meðlimur í sænsku ISAAC deildinni.

Allir geta gerst aðilar í ISAAC. Sjá nánar á heimasíðu samtakanna, www.isaac-online.org/

ISSAC Biennial Conference: Annaðhvert ár er haldin alþjóðleg ráðstefna á vegun ISAAC. Það er mat undirritaðrar að um er að ræða glæsilegar og vel skipulagðar ráðstefnur af bestu gerð þar sem bæði notendur og fagaðilar skiptast á þekkingu og reynslu. Þarna eru kynntar allar helstu nýjungar á þessu sviði hvort sem um er að ræða  tæknileg tjáskiptahjálpartæki, kennsluaðferðir, tjáskiptaleiðir eða rannsóknir. Einn besti vettvangur til að kynna sér og fylgjst með nýjungum og þróun á sviði óhefðbundinna tjáskiptaleiða.  

Heimasíða ISAAC er:  http://isaac-online.org

Isaac deildarnar á hinum Norðurlöndunum halda uppi góðum heimasíðum sem vert er að skoða. Má þar nefna: www.isaac.no/ (Noregur),  www.isaac.dk/ (Danmörk) , www.papunet.net/isaac (Finnland)

Augmentative and alternative Communication (AAC) er alþjóðlegt tímarit sem ISAAC gefur út ársfjórðungslega. Þeir sem eru meðlimir í ISAAC fá blaðið sent að kostnaðarlausu. Sjá nánar: www.isaac-online.org/en/publications/aac.html

 

Sigrún Grendal Magnúsdóttir, des. 2010

 

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica