Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins

PCS

Um PCS (Picture Communication Symbols)

PCS er myndrænt táknkerfi sem hannað var sérstaklega til að nota til tjáskipta. Myndirnar eru titölulega einfaldar og hægt að nota þær á fjöbreyttan hátt.

PCS_1PCS_2PCS_3

Útbreyðsla og notkun á PCS hefur aukist verulega undanfarin ár. Framleiðandi PCS (Mayer-Johnson) hefur verið ötull í þróun tölvuforrita og kennslugagna sem auðvelt er að nálgast á netinu. PCS er sérstaklega notað með þeim sem eiga erfitt með að tjá sig með tali. Þá er táknmyndunum komið fyrir á sérstakar tjáskiptatöflur eða tjáskiptamöppur sem þróaðar eru með hvern notanda í huga. Notandinn tjáir sig með því að benda á eða rétta viðeigandi tákn. Auk þess að nota PCS til tjáksipta hefur það mikið verið notað í myndrænar vísbendingar eða myndrænt skipulag. Þannig er t.d. hægt að setja upp töflur í mismunandi útfærslum sem sýna og halda utan um ákveðnar athafnaraðir, dagskipan og stundaskrár í skólum, leikskólum, heimilum og vinnustöðum.

PCS_4PCS_5PCS_6PCS_7

Ýmsar kennslu- og þjálfunaraðferðir hafa þróast í notkun myndrænna tjáskiptaleiða. Má þar nefna PECS ( The Picture Exchange Communication system) og TEACCH (Treatment and Education of Autistic and related Communication Handicapped Children). Báðar þessar aðferðir hafa sérstaklega verið þróaðar með fólki með einhverfurófsröskun í huga. Hægt er að lesa meira um það hér. Aðferðir þessar geta einnig nýst vel með öðrum hópum og eru þá gjarnan aðlagaðar hverjum og einum.

 

Fólk með hreyfihömlun er stór hópur þeirra sem nota myndrænar tjáskiptaleiðir og er PCS ein af þeim. Þar sem hreyfihömlunin getur verið  svo misjöfn eru kennslu- og þjálfunaraðferðirnar oft á tíðum mjög einstaklingsbundnar. Það þarf að útfæra sérstakleg fyrir hvern og einn hvernig gera má táknmyndirnar aðgengilegar þannig að þær nýtist til tjáskipta. Í sumum tilvikum þarf að nota tjáskiptahjálpartæki hvort sem um er að ræða tiltölulega einföld áhöld og tæki eða flókin og tæknileg s.s. tölvur og talvélar.

Sigrún Grendal Magnúsdóttir, des. 2010




Þetta vefsvæði byggir á Eplica