Þjónustuteymi
Þjónustuteymi er myndað í kring um barnið og fjölskyldu þess. Í teyminu eru foreldrar og fulltrúar allra þeirra aðila sem koma að þjónustu við barnið og fjölskylduna. Þessir aðilar fylgja sameiginlegum markmiðum og miðla upplýsingum sín á milli. Þjónustuteymið ákveður hversu oft það hittist þó aldrei sjaldnar en einu sinni til tvisvar á ári. Endurskoða þarf reglulega hverjir eru aðilar að þjónustuteyminu og hvert hlutverk þeirra er. Þegar barnið hefur náð unglingsaldri er mikilvægt að unglingurinn sé virkur þátttakandi í teyminu.

