Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins

Snemmtæk íhlutun

Snemmtæk íhlutun (early intervention) á fagsviði hreyfi- og skynhamlana er þjónusta við ung börn (yfirleitt miðað við börn yngri en 4-5 ára) og fjölskyldur þeirra. Í þjónustunni felst meðal annars greining þroskafrávika, markviss örvun þroska hjá ungum börnum, ráðgjöf til foreldra og aðstandenda og ráðgjöf til meðferðaraðila utan Greiningarstöðvar.

Börnum undir tveggja ára aldri, sem búa á suðvestur-horni landsins, er boðin reglubundin íhlutun á Greiningarstöð.  Lögð er áhersla á að veita foreldrum ráðgjöf um umönnun og uppeldi. Íhlutun fer yfirleitt fram á heimili barnsins henti það barninu og fjölskyldunni.  Lögð er áhersla á náið samstarf við meðferðaraðila utan Greiningarstöðvar t.d. sjúkraþjálfara og sérfræðinga á Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga (áður Sjónstöð Íslands). Þegar það á við er íhlutun á vegum Greiningarstöðvar  fléttuð inn í þjónustu þeirra aðila t.d. með heimsóknum í meðferðartíma (hjá sjúkraþjálfurum og á Þjónustu- og þekkingarmiðstöð).

Ef barnið býr úti á landi er þjónustan með öðru sniði. Í kjölfar fyrstu heimsóknar á Greiningarstöð eru næstu skref ákveðin. Athugað er hvort þroskaþjálfi, leikskólakennari (eða sambærilegur starfsmaður) starfi á viðkomandi svæði, t.d. á skólaskrifstofu og geti þá veitt barninu nauðsynlega örvun og íhlutun. Greiningarstöð veitir ráðgjöf til viðkomandi aðila varðandi helstu áherslur í þjónustunni. Barninu og fjölskyldunni er boðið upp á eftirfylgd á Greiningarstöð auk þess sem starfsfólk sviðsins fer í heimsóknir til skjólstæðinga á landsbyggðinni. Lögð er áhersla á fræðslu fyrir foreldra og stuðning við störf þjónustuaðila í heimabyggð.

Þroskaþjálfi hittir barnið reglulega í íhlutun fram að leikskólagöngu.  Þegar að leikskólagöngu kemur veitir þroskaþjálfi ráðgjöf til leikskóla varðandi þjálfun.

Þegar barn byrjar í leikskóla er stofnað þjónustuteymi. Tilgangur þess er að samræma alla íhlutun og þjónustu sem barnið og fjölskyldan fær. Teymið samanstendur af  foreldrum, og þjálfurum barnsins og fulltrúa sveitarfélags. Teymisfundir eru yfirleitt haldnir tvisvar á ári og fer teymið yfir gang mála bæði hvað varðar þjálfun barnsins og þjónustu við fjölskyldunna. 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica