Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Ráðgjöf og eftirfylgd

30.4.2009

Í kjölfar greiningar fer fram eftirfylgd, en með eftirfylgd er átt við að fylgst sé með aðstöðu og framförum einstaklingsins og að hann njóti viðeigandi þjónustu, svo sem ráðgjafar, sérkennslu, þjálfunar og meðferðar, félagslegs stuðnings og hjálpartækja. Einnig felur eftirfylgd í sér endurmat á færni og aðstæðum.

Að jafnaði er eftirfylgd í höndum aðila utan Greiningarstöðvar og í sem nánustu umhverfi við búsetu barnsins. Þessir aðilar geta verið sérfræðingar svæðiskrifstofa málefna fatlaðra eða sveitarfélaga sem tekið hafa að sér þjónustu við fatlaða, sérfræðiþjónusta skóla, ráðgjafarþjónusta leikskóla eða aðrir sérfræðingar.

Greiningar- og ráðgjafarstöð ríkisins fer þó með eftirfylgd og ráðgjöf til lengri tíma vegna einstaklinga með óvenjuflóknar eða sjaldgæfar fatlanir og þroskaraskanir og sérhæfð vandamál tengd fötlun þeirra.


 

 



Þetta vefsvæði byggir á Eplica