Skil á niðurstöðum til fjölskyldu og þjónustuaðila
Greiningarferlinu lýkur á því að foreldrar og sérfræðingar ræða niðurstöður athugana, þarfir barnsins og fjölskyldunnar. Á þeim grunni er gerð áætlun um þjónustu næstu misserin.
Foreldrar og þjónustuaðilar fá síðan sendar skýrslur um niðurstöður athugunarinnar.
Í framhaldinu er haldinn fundur með þjónustuaðilum. Á þann fund eru boðaðir foreldrar barnsins, leikskóla/grunnskólafólk, þjálfarar barnsins, ráðgjafar frá sveitarfélagi og aðrir þjónustuaðilar eftir því sem við á. Þessir aðilar eru alla jafna þeir sem skipa þjónustuteymi barnsins.
Á fundinum er farið yfir niðurstöður athugunar, fundargestir skiptast á upplýsingum um barnið og ákvarðanir teknar um næstu skref í þjónustu við fjölskylduna.

