Hvenær fara athuganir fram
Á fagsviði hreyfi- og skynhamlana er leitast við að greining liggi fyrir við mikilvæga áfanga í lífi barnsins svo sem við upphaf leikskólagöngu og skólagöngu. Þetta er þó breytilegt eftir því hver fötlun barnsins er.
Ef barni er vísað ungu á sviðið er leitast við að athugun fari fram við tveggja ára aldur eða um það leyti sem barnið byrjar í leikskóla. Ákveðinn hópur barna er ekki athugaður við þessi tímamót, það eru helst börn með hreyfihömlun vegna sjúkdóma í taugum eða vöðvum þar sem starfsemi miðtaugakerfis er ekki skert. Þau eru oft í móttökuhópi sviðsins.
Flest börn sem tengjast fagsviði hreyfi- og skynhamlana koma í athugun fyrir upphaf grunnskólagöngu. Þessi hópur nýtur mikils forgangs í vinnu sviðsins og er stefnt að því að öll börn hafi komið í þverfaglega athugun í seinasta lagi vorið áður en grunnskólagangan hefst. Þegar um alvarlega hreyfihömlun er að ræða þarf að undirbúa skólann vel fyrir komu nemandans, til dæmis með því að aðlaga aðgengi.

