Fyrsta koma
Fljótlega eftir að tilvísum berst á fagsvið hreyfi- og skynhamlana er fjölskyldunni boðið í fyrstu heimsókn á Greiningarstöð. Í fyrstu heimsókn fær fjölskyldan að vita hvaða þjónusta er í boði á sviðinu og lagt er mat á þarfir fjölskyldunnar. Í framhaldinu er svo sett upp áætlun um næstu skref í þjónustu við barnið og fjölskyldu þess.

