Greiningarferli
Greining fötlunar fer fram með athugun sérfræðinga á færni barnsins á ýmsum sviðum. Leitast er við að skilgreina þjálfunar- og meðferðarþarfir. Metnar eru þarfir fyrir hjálpartæki, tjáskipti, félagslega og tilfinningalega aðstoð og aðstoð vegna hegðunar. Með því er leitað leiða til að draga úr áhrifum fötlunarinnar á líf einstaklingsins og fjölskyldu hans. Í kjölfar greiningar er fjölskyldu og þjónustuaðilum veitt ráðgjöf um þjálfun og önnur úrræði.
Greiningin byggist á náinni samvinnu sérfræðinga sem hver hefur sína fagþekkingu og leggur sitt að mörkum til heildarniðurstöðu.

