Greiningar- og ráðgjafastöð ríkisins
Fagsvið

24.11.2008

Starfsemi Greiningarstöðvarinnar er skipt upp í þrjú fagsvið:

Fagsvið einhverfu

Þangað er vísað börnum þegar frumgreining bendir til röskunar á einhverfurófi. Sviðsstjóri er Dr. Evald Sæmundsen, sálfræðingur og sérfræðingur í fötlunum barna.

Fagsvið hreyfi- og skynhamlana

Þangað er vísað börnum þegar frumgreining bendir til hreyfihömlunar, blindu eða alvarlegrar sjónskerðingar. Sviðsstjóri er Solveig Sigurðardóttir, barnalæknir og sérfræðingur í fötlunum barna.

Fagsvið þroskahamlana.

Þangað er vísað börnum sem hafa fengið frumgreiningu sem bendir til þroskahömlunar. Sviðsstjóri er Hrönn Björnsdóttir félagsráðgjafi.








Þetta vefsvæði byggir á Eplica